Innlent

Halla vill skikka ung­menni í sam­fé­lags­þjónustu

Jakob Bjarnar skrifar
Halla Tómasdóttir við það tækifæri þegar landskjörstjórn úrskurði um gildi forsetaframboða á fundi í Þjóðminjasafni Íslands.
Halla Tómasdóttir við það tækifæri þegar landskjörstjórn úrskurði um gildi forsetaframboða á fundi í Þjóðminjasafni Íslands. vísir/vilhelm

Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið.

Forsetakosningarnar eru gósentíð fyrir fjölmiðla og ekki síður þá sem eru með hlaðvörp. Ellefu í framboði, einn búinn að kæra niðurstöður landstjórnar og allir vilja þeir láta á sér bera. Kynna sig og sín áhersluefni, eins og það heitir. Stundum er eins og forsetaembættið sé miklu viðameira en það er. 

Frosti er einn þeirra hlaðvarpara sem nú ræðir við forsetaframbjóðendur eins og hann eigi lífið að leysa og Halla var í stólnum hjá honum nýverið þar sem hún viðraði þá hugmynd að hér yrði tekin upp samfélagsþjónusta fyrir ungt fólk. Sem er nýstárleg hugmynd, minnir á herskyldu en er þó ekkert slíkt í huga Höllu.

„Sundruð þjóð á aldrei eftir að nýta þau tækifæri sem blasa við. Við þurfum að koma upp úr skurðunum sem við höfum verið að grafa og byggja brýr milli hópa og kynslóða.“

Halla vill taka alvöru samtal um þetta og að því gefnu bíður Íslands ekkert annað en ótrúlega björt framtíð. Og liður í því gæti verið samfélagsþjónusta.

„Þegar við styttum framhaldsskólann okkar er ýmislegt sem bendir til þess að það hafi ekki endilega verið góð ákvörðun; aukið álag, stress og jafnvel minnkað námsgetu sem reyndar aukin samfélagsmiðlanotkun virðist vera að gera.“

Halla segir okkur minna úti við og unga fólkið okkar er að standa sig verr í skóla.

„En ef við myndum gefa ungu fólki kost á árs samfélagsþjónustu að loknum menntaskóla áður en það fer í háskóla; vinna með eldri borgum, vinna með unga fólkinu okkar, vinna einhverja samfélagsþjónustu, pikka upp rusl, hvað sem er, vinna í leikskólum … þá myndi það bæði hjálpa til við að finna tilgang og tengingu við sitt samfélag – það er líklega ekkert mikilvægara fyrir okkur en gera gagn og láta gott af okkur leiða. Og finna sér farveg.“

Halla segir iðngreinar hafi verið út undan áratugum saman og við séum að súpa seyðið af því nú.

„Það eru svo mörg mál sem mætti lyfta upp með samfélagsþjónustu,“ segir Halla.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×